Barbietec á Instragram


Blogg um hlaupBlogg um hlaup

Hjólatúr - Forsendur  Prentsýn Prenta færslu  

föstudagur 10. maí 2013 kl: 08:44


Forsendur breyta væntingum.
Forsendur breyta einnig niðurstöðum og
Forsendur breyta hugafari.
Forsendur eru stór þáttur í lífi manns þó maður segi þetta orð kannski ekki svo mikið upphátt, en jæja..

KK standsetti hjólin okkar í gær, en við fengum lánað í fyrra tengihjól á hjólið hans KK þar sem Stubburinn situr á, en svo í fyrra keypti ég mér innkaupakerru í fyrra sem verður notuð sem hundakerra í ár. Þannig að í ár sýnist mér draumur minn vera að rætast bara Broskall

Fyrsti stutti túrinn var farinn. LItli Stubbur stóð sig ótrúlega vel á hjólinu, Þegar Bjartrur náði því að það eigi ekki að hoppa upp úr körfunni þá fór allt að ganga miklu betur en við að sjálfsögðu festum hann niður og breyddum yfir hann.

Hér eru myndir frá ferðalaginu

hjolhjolhjol

hjolhjolhjol

Nú sé ég í draumakasti okkur taka 10k hjólatúra alveg upp í 25k í sumar með hele familien bæði tvífættlinga og fjórfættlinga, einsa sem ég get lagt að mörkum til þess er að vera "aktív", ganga, hjóla, og æfa litlu kútana Stefán og Bjart.



  

  Hefur þú eitthvað að segja?  (3 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Lóa,  Vala,  Þórgunnur,  

Blogg um göngurBlogg um göngur

Göngutúr  Prentsýn Prenta færslu  

miðvikudagur 08. maí 2013 kl: 15:01


Sama hversu þreytt ég er og sama hver orkan er þá er stefnan að fara út að ganga á hverjum degi 30 - 50 mínútúr. Segi þetta núna öðrum degi frá lyfjameðferð, en í gær var ég í banastuði (sterastuði) en í dag svefnstuði (sterar að fara) og svaf til hálf tvö, skoppaði samt út með múttu og tólk 3.5 km í hægri göngu.

Við erum búnar að búa til viðmiðunarhring en mér finnst þessi fjarlægð fín í það, þrátt fyrir að vilja ná 5 km göngu sem PíS oF Keik göngu, núna fæ ég svoldið í kroppinn á að ganga 3.5 km

Þetta er s.s. staðan,,, náði 3.5 km í dag með Bjart í bandi (hann tefur okkur svoldið) á 54 mínútum hehehe.. svaka pace eða þannig LOL!, en ég fór! KOMMON!

Ætla að nota Endomondo sem tracking dót (ætli þetta virki plííííís, eins og strákurinn minn segir það)



  

  Hefur þú eitthvað að segja?  (4 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Bára,  Brynja Björk,  Hrafnhildur,  Sigrún Magnúsdóttir,  

Blogg um prjónaBlogg um prjóna

Captain America  Prentsýn Prenta færslu  

miðvikudagur 08. maí 2013 kl: 11:21


Ég er að gera Ofurhetjuþema í hekli og var að ljúka við Captain America. Ég verð að segja að ég er einstaklega ánægð með útkomuna og vakti fígúran mikla hrifningu hjá karlpeningnum í familíunni.

Hér er mynd af ofurhetjunni en næst er það Iron Man

hekl/

  

  Hefur þú eitthvað að segja?  (2 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Bára,  Trítla,  

Blogg um fjölskyldunaBlogg um fjölskylduna

Má ég fara til ömmu?  Prentsýn Prenta færslu  

sunnudagur 05. maí 2013 kl: 19:49


VIð vorum að þvo Bjarti þegar Stefán Steinn kom og bað um að fara heim til ömmu sinni, ég held að þessi bón sé einna krúttlegustu í tónasmíðum.



  

  Hefur þú eitthvað að segja?  (Enginn hefur sagt orð)

Blogg um krabbameinBlogg um krabbamein

Líðan undanfarna daga  Prentsýn Prenta færslu  

sunnudagur 05. maí 2013 kl: 16:49


origamiEins og kom fram í síðustu færslu er verið að verkjastilla mig betur, en fyrstu niðurstöður myndaniðurstöðvanna sem ég fór í um daginn benda ekki til þess að staðan sé góð og ég þarf að fá önnur krabbameinslyf í næstu gjöf (eins og ég skil það) á mánudaginn.

Það kæmi mér ekki á óvart að hægt sé að alhæfa að K-sjúkling kvíði almennt séð ofsboðslega fyrir aukaverkunum lyfja þegar læknirinn segir "ný lyf", "ný meðferð", "ný kúr" því með þessu orði "ný" fylgja "nýjar" aukaverkanir.

Sumar þeirra eru góðar (þú færð engar) meðan hinar er slæmar (ælir og óalmenn vanlíðan sem varla er hægt að lýsa ef maður er ekki búinn að ganga í gegnum K-aukaverkanir) þannig að tilfinningasrússibaninn sem ég er að fara í gegnum núna er kannski ekki upp á það besta.

Ég man þegar ég sagði upphátt fyrir svolitlu að ef læknirinn minn myndi stinga upp á við mig um nýja meðferð af því að sú fyrri virkar ekki, þá er ég ekki viss um að ég muni fari í gegnum þá nýju. Sem sýnir svolítið að ég hafi búist við nýrri meðferð.

Þori ég hreinlega að komast að því hvort lyfin fari vel í mig eða illa? Sýna viðbrögðin það? En einhverra hluta vegna sagði ég við lækninn á föstudaginn "og hver eru næstu skref" þegar hann sagði að ég þyrfti sennilega að breyta um stefnu. Sem sagt, uppgjöf var ekki málið eins og fyrr um daginn. Óþolandi ávani.

En svo fór ég að blóta og bölva að en og aftur er verið að koma manni í þá stöðu að geta ekki gert plön. Mig langar svo að bara geta sest niður þegar még dettur í hug hvenær sem er og gert plön. Ég sem var byrjuð á fullu, komin með skothelt plan og allt saman, en nei þá kemur læknirinn og segir BÆNG og planið er dautt.

Það er svo margt sem hefur verið að skríða í gegnum kollinn á mér undanfarið (sem snýst ekki um nýjar meðferðir og kvalir sem fylgjast þeim) og þá kemur akkúrat upp það sem maður hræðist mest og það er enganvegin hægt að plana hvorki upphátt né í hljóði hvað til bragðs skuli taka. Meiri andskotans vitleysan.

Ég veit hvað ég vil i nnst inni, það kæmi mér ekki á óvart að ferlið sé á þeirri leið, en það er ekki endilega það sem ég vil.

Strange!.

p.s. myndin er mynd af Origami óróa sem ein góð vinkona mín gerði handa mér úr ofurhetjupappír. Gleðigjöf gerð frá hjartanu!

  

  Hefur þú eitthvað að segja?  (9 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Angua,  Bára,  Bestla,  Hildur H (ókunnug),  Hjördís,  Kittý,  María,  Pabbi,  Palmi,  

Blogg um krabbameinBlogg um krabbamein

Verkjastilling  Prentsýn Prenta færslu  

laugardagur 27. apríl 2013 kl: 16:41


pillurUndanfarnar vikur hafa hjúkrunarkonur komið heim til mín og við erum að vinna í að verkjastilla mig.

Ég skammast mín svolítið fyrir hversu mikið ég finn til í bakinu og að ég er fljót að vera farin að ganga eins og gömul kerling eftir að ég vakna. Það þarf ekki mikið til hjá mér svo ég fari að vera skökk og bogin af verkjum.

Það sem fer einnig í taugarnar á mér er að verkirnir minna mig alltaf á ástandið, ég á nóg með að umgangast fólk sem er stöðugt að spyrja mig að góðsmennsku hvernig gengur, en svo bætast verkir ofan á svo segja "hahaþúertiveikhahaþúertveik"

Þá fer ég í niðurbrotssteminguna og tala leiðinlega (niður) til mín.

Hjúkkan í dag sagði að ég ætti að vanda mig að tala við mig eins og ég myndi tala við vinkonu eða vin. Ég myndi aldrei fara segja við vinkonu mína "hættu þessu væli og harkaðu bara af þér", eða "aumingjaskapur er þetta í þér stelpa" og svo framvegis.

Þannig að þessi vika fer í það að tala vel til mín og ekki brjóta mig svona niður, heldur byggja mig upp. Hjúkkan kemur næst á mánudaginn, svo er rannsókn líka á mánudaginn, þannig að þetta er svolítið stress vika, þannig að það er kannski ekkert verra að taka svona sálfræðilega viku núna.

Er það ekki bara...

  

  Hefur þú eitthvað að segja?  (7 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Anna Sigga,  Bára (ókunnug),  Björn Tryggvason ,  Helga,  Inga ,  Kittý,  kristín (ókunnug) ,  

Blogg um prjónaBlogg um prjóna

Hekluð kanína  Prentsýn Prenta færslu  

mánudagur 22. apríl 2013 kl: 22:27


Undanfarna daga hef ég verið að hekla kanínu úr afgöngum af Létt lopa. Kom ekki í ljós þessi fína Kanína rétt í þessu en mig vantar eitthvað skemmtilegt nafn á hana.

Það var svolítið mál að gera kanínuna á kafla, þannig að ég bara breytti uppskriftinni, það kemur ekki að sök og gerir hana bara að algjörlega að minni sem er ekki verra.

Hún er örugglega 50 cm á hæð, stór og stæðileg og vá hvað Litla Kút langar í hana heheheheh

kanín

  

  Hefur þú eitthvað að segja?  (5 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Barbietec,  Kristín Erla ,  Sandra (aprílmamma),  Sigurveig,  Thelma,  

Blogg um krabbameinBlogg um krabbamein

Lyfjameðferð Apríl 2  Prentsýn Prenta færslu  

mánudagur 22. apríl 2013 kl: 22:22


cancerÞað hefur ekki gengið sem skyldi með mig undanfarna viku. Þ.e.a.s. ég er búin að vera mjög verkjuð og hef ælt eins og ég veit ekki hvað sem gerði það að verkum að það er búið að hækka við mig verkjaskammt og ég þurfti að fá hjúkku heim sem gaf mér næringu í æð og læti.

Í dag fór ég í lyfjameðferð en eins og svo oft áður var meðferðin ótrúlega skemmtileg, hjúkkurnar góðu sinntu mér svo vel, fékk í heimsókn tvær vinkonur og mamma gamla fór með mig upp á spítala og var mér einnig til skemmtunar.

Krabbameinið er enn á uppleið (ekki gott) en ég fer eftir viku í myndatökur.

Annaðhvort er krabbameinið farið og eftir eru holur sem gera það að verkum að mér er svona illt (barnaleg óskhyggja hér á ferð) eða krabbameinið hefur versnað og mér er svo illt (kannski líklegri skýring) en það kemur allt í ljós í næstu viku vonandi. *panic*

Ég er komin með HUNDLEIÐ á þessu!!!!

En mér tekst samt sem áður að gera grín að þessu, að því komst ég að í dag þegar ég var að gantast með skutlunum mínum hihihihhih Broskall

TAKK FYRIR KOMUNA! LOVE YOU xoXO

  

  Hefur þú eitthvað að segja?  (7 hafa tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Anna Sigga,  Inga Hrund,  Kristín Erla ,  Nilla,  Pabbi,  Sigurveig,  

DýrabloggDýrablogg

Bjartur lærir að sitja og vera kyrr  Prentsýn Prenta færslu  

laugardagur 20. apríl 2013 kl: 15:43


Bjartur er að læra eitthað nýtt á hverjum degi og núna erum við að kenna honum að vera kyrr þegar matur er settur fyrir framan hann og setjast.

Hann er alveg að ná þessu! Má bara alls ekki vera í brjáluðu hvolpastuði Broskall

Hér er myndband!



  

  Hefur þú eitthvað að segja?  (1 hefur tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Angua,  

Blogg um prjónaBlogg um prjóna

Leirkerasmíði  Prentsýn Prenta færslu  

laugardagur 20. apríl 2013 kl: 10:46


Bjarni Sigurðsson leirkerasmiður bauð yngri konum úr Ljósinu til að koma til sín og læra að leira en ég hef nokkrum sinnum leirað upp í Ljósi en aldrei svona frá grunni eins og við lærðum hjá Bjarna.

Ég fór í þrjú skipti til að gera munina mína, en það voru bollar, mjólkurskál, stór skál og Íslönd.

Bjarni gerir ótrúlega flotta muni og er hann einnig einstaklega góður í að kenna. Mig langar bara aftur og aftur og aftur til hans, þetta var svo gaman!

Bjarni lærði í Danmörku leirkerasmíð en er svo heppinn að hann getur eingöngu unnið við listina og hefur hann varla undan í að gera fallega muni og sendir listaverkin sín um allan heim.

En hér eru verkin sem ég gerði, það er meira segja Aska úr Eyjafjallajökli í glerungnum, gerir alla munina einstaklega sögulega. Íslöndin dreifðust til Mömmu og Dagrúnar og eitt þeirra er komið upp á vegg hjá mér Broskall Mér finnst svo gaman að gera eitthvað í höndunum og gefa það svo frá mér, veitir mér svo mikla gleðl.

En já, hér er smá myndasyrpa, en hver tími endaði á ljúffengri köku sem Bjarni skutlaði saman eins og ekkert væri en við Ljósberarnir féllum alltaf í yfirlið yfir útliti og bragði.

myndir

  

  Hefur þú eitthvað að segja?  (1 hefur tjáð sig)
Þeir sem hafa tjáð sig: Kristín Erla ,  

Viltu lesa meira blogg?